06desember
Sorry með mig hvað ég er léleg að blogga... Ég er búin að hafa það bara ógurlega gott, nóg að gera í skólanum og gengur vel. Það er svosem ekkert merkilegt búið að gerast síðan síðasta færsla var. Jú ætli það sé ekki vert að segja frá að ég fékk mér nýja tölvu í haust, iMac, og ég sem var svo hörð á því að vera PC manneskja er gjörsamlega orðinn forfallinn makkari hehehe :)
Það eru 2 vikur í að ég fer heim til Íslands í smá jólafrí, verður gaman að sjá alla familíuna og vinina - og Hnoðra auðvitað! Ég hlakka ekkert smá til :) Kannski maður fái að sjá snjó líka!
Ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni en svona að lokum, þú þarna "Custom Term papers" hvort sem þú ert einhver bot eða actually manneskja vinsamlega hættu að commenta á færslurnar mínar.
17apríl
Party party á Íslandi, eldgos og læti! Lífið í San Francisco gengur sinn vanagang samt, fólk spyr mig jú um hvað sé ástandið á Íslandi og hvort fólk sé nokkuð í hættu. Það er bara vonandi að Katla gjósi ekki stórt þegar kemur að henni...
Í gær fórum við Heiðrún á tónleika með Jónsa úr Sigur Rós í Palace of Fine Arts hér í San Francisco. Ég á ekki til orð að lýsa því hvað þessi maður er góður, þetta voru rosalegir tónleikar og allt sjónarspilið á sviðinu var rosalega flott. Þetta var eins og að fara heim til Íslands í 2 klukkustundir og það var æðislegt.
Það gengur rosa vel í skólanum, finals eru að fara að byrja núna, bara 5 vikur eftir af þessari önn.
Það er víst voða lítið annað að frétta þannig að ég hef þetta ekki lengra í bili.
Elín
21mars
Vúps! Soldið langt síðan ég skrifaði eitthvað hér síðast... Sorry með það! Allavega það er alveg helling búið að gerast síðan síðasta blogg. Aðal ástæðan fyrir bloggleysinu er sú að ég var að flytja í nýja íbúð um miðjan janúar og við fengum ekki internet tengingu fyrr en í byrjun mars! AT&T að gera góða hluti... ég sótti um 4 sinnum hjá þeim áður en þeir loksins föttuðu að þeir þjónusta ekki svæðið þar sem ég bý, vel gert! Þannig að við fórum yfir til Comcast og fengum internet og cable tv :) Ég flutti í hverfi sem heitir Nob Hill, soldið lengra frá skólanum en gamla íbúðin og engin sundlaug eða gym en leigan er aðeins lægri og íbúðin er mun betri. Við erum allavega með sitthvort herbergið við Heiðrún og svo er stofa, eldhús, baðherbergi og fullt fullt af skápaplássi. Hendi inn myndum hér fljótlega :)
Spring break er núna þessa vikuna, kærkomið frí frá skólanum og veðrið gæti ekki verið betra þessa dagana, ég er búin að liggja uppá þaki síðustu daga og ná upp ágætis tani :) Vikan mun fara í slökun og eitthvað aðeins í heimavinnu og svo ætlum við að fara eitthvað á ströndina líka, ekkert Vegas í þetta skiptið.
Ég mun líklega ekkert koma heim til Íslands í sumar, það er einfaldlega bara of dýrt og ég ætla frekar bara að taka sumar önnina hér og flýta fyrir að ég klári námið fyrr :) Get ekki sagt að ég sé ekki pínu leið yfir að koma ekki heim - ekki það að ég sé með heimþrá en það er bara skrítið að vita að ég sé ekkert á leiðinni heim fyrr en einhvertíman á næsta ári í fyrsta lagi...
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili - ætlaði bara að láta vita að ég er á lífi og allt gengur vel :)
Kveðja til allra á klakanum og gleðilega páska (svona til öryggis ef ég skyldi ekki blogga aftur fyrir páska)
25desember
Gleðileg jól allir saman það er komin jólastund... :)
Jólin hafa verið bara mjög cosy hjá okkur hér í San Francisco, mér reyndar líður EKKERT eins og það séu jól þar sem að maður vaknar við sólskynið inn um gluggann á hverjum morgni. En í gær, aðfangadag, gerðum við Heiðrún okkur lítið fyrir og elduðum jólamat: kjúkling með fyllingu, svona mini útgáfu af kalkún með fyllingu en tókum 3 kg kjúkling í staðin því við vorum bara þrjár í mat. Hlussu kjúklingur alveg og við átum á okkur gat og lágum afvelta gjörsamlega á eftir. Við vorum svo myndarlegar í eldhúsinu að mömmur okkar hefðu rifnað úr stolti hefðu þær séð okkur :) Ég brúnaði kartöflur og bjó til sósuna, Heiðrún bjó til fyllinguna og setti í kjúllann, ég hjálpaði pínu, og svo bjó hún til sherryís að hætti ömmu sinnar. Svo buðum við annarri íslenskri stelpu í mat sem heitir Kristrún og hún kom með skyr/hrísgrjóna eftir rétt með súkkulaði og ávöxtum og hún kom líka með lítið jólatré!
Annars gekk bara rosa vel í skólanum, ég er komin með 4 einkunnir af 5: A í calligraphy, A- í photography, B í composition for the artist (ensku), B í typography og ég er enn að bíða eftir einkunn úr history of graphic design.
Jón Bjarni er svo að koma á mánudaginn eða þriðjudaginn, fer eftir hvort það verði einhver seinkun á fluginu hans. Ég hlakka svoooooo til að fara á Star Trek exhibition - not hehe. Annars ætlum við líklega að taka heilan sólarhring í San Jose, eru víst mjög góðir næturklúbbar þar :P
Við Heiðrún erum búnar að finna okkur íbúð í Nob Hill, sem er eitt besta hverfið í San Francisco, skrifum undir leigusamninginn á sunnudaginn næsta. Voða indæl kínversk kona sem á íbúðina og við flytjum líklega 12. janúar þannig að Jón Bjarni sleppur við að vera burðardýr.
Annars er allt bara rosa gott að frétta héðan, fékk pínu heimþrá á þorláksmessu en hún er liðin hjá að mestu :)
Bið að heilsa öllum heima og vona að allir hafi það gott yfir hátíðarnar!
24nóvember
Það styttist óðfluga í endann á þessari önn, gengur bara þokkalega, allt á fullu núna í lokaverkefnum. Er að skila einu verkefni á miðvikudaginn, reyndar ekki lokaverkefni en samt stórt verkefni sem gildir mikið í ljósmyndun. Það er geisladiska bæklingur og hulstur. Er að búa til bók um Bauhaus í sögu, hún verður professionally prentuð og bundin og allt. Svo eru 2 aðrar bækur sem eru meira bara svona process bækur, með öllum verkefnum vetrarins í typography og calligraphy.
Thanksgiving er á fimmtudaginn, þannig að það er frí í skólanum á fimmtudag og föstudag og við Rut förum heim til Söruh á miðvikudaginn eftir tíma. Verður gaman að sjá hvernig thanksgiving er haldin og borða góðan mat :) Þetta verður kærkomið frí og verður gaman að sjá Monterey, er víst rosa fallegt þar.
San Francisco er öll komin í jólabúning, jólaskraut og jólatré út um allt - samt er ekkert jólalegt. Vantar snjóinn, ekki það að ég sakni hans! Það er samt alveg farið að kólna þó það fari nú varla að snjóa hér í miðri Californiu. Ég allavega ætla rétt að vona ekki.
Við Heiðrún erum farnar að litast um eftir íbúð til að flytja í um miðjan janúar. Það verður stuð hjá okkur að búa saman.
Jón Bjarni er kominn með stífa dagskrá yfir það sem hann vill gera þegar hann kemur í heimsókn - þar á meðal að heimsækja eitthvað Star Trek safn í San Jose.... ekki minn tebolli en ætli maður verði ekki að fara með svo hann týnist ekki þessi kjáni. Það væri nú alveg eftir honum...
Hef svosem ekkert mikið meira að segja, allt gott að frétta bara.
Bið að heilsa heim á klakann :)
03nóvember
Jæja þá eru midterms búin, gekk bara ágætlega held ég, allavega í því sem ég er búin að fá útúr, er komin með 2 A og 2 B-, á bara eftir að fá eina einkunn í viðbót.
Ég og Heiðrún skelltum okkur til L.A. um helgina, fórum á föstudagskvöldi og heim á sunnudegi þannig að við náðum 1 og hálfum degi, þannig að skiljanlega náðum við ekki að skoða borgina mikið. En þetta var alveg æðislegt, fórum í risa Halloween partý á klúbb sem heitir XIV, átti að kosta $75 inn en þar sem ég þekki stelpu sem vinnur þar reddaði hún okkur frítt inn :D Takk Hildur þú ert æði! Leonardo DiCaprio átti víst frátekið borð á þessum stað en ég sá hann ekki... sá engann frægann - svekk! hehehe En við fórum í svona túrista rútu um Hollywood, leiðsögukonan talaði og talaði allan tímann og vissi sko allt um allt fræga fólkið. Okkur fannst mjög spes að sjá hvað L.A. er alls ekki eins fancy og maður hefði haldið. L.A. er samt alveg geggjuð borg, miklu miklu miklu stærri en San Francisco, fallegra fólk - það er alveg hryllilega mikið af ljótu fólki í San Francisco - betra loftslag (alltaf sól og ekki eins rakt), ódýrara að leigja þar og ég er búin að finna skóla sem er ódýrari en minn skóli, win win win situation. Er að pæla í að flytja mig þangað næsta sumar eða haust. Við Heiðrún erum allavega mjög spenntar fyrir því.
Annars er bara allt gott að frétta, heilsan góð, engin svínaflensa - ætlaði að fara í bólusetningu fyrir henni en röðin var víst svo löng að ég væri enn að bíða hefði ég farið! Þannig að það er bara að krossa fingur að maður fái ekki þennan andskota!
Styttist í thanksgiving, Sarah vinkona mín er búin að bjóða mér og Rut heim til mömmu sinnar til að upplifa alvöru ameríska þakkagjörðarhátíð, það verður örugglega alveg frábært. Mamma hennar býr í bæ sem heitir Monterey og er aðeins sunnan við San Francisco. Við ætlum að keyra þangað á miðvikudeginum og vera til föstudags og taka þá rútu heim, Sarah verður áfram yfir helgina, fá smá quality time alone með familíunni sinni :)
Jæja hef ekki meir að segja í bili - laterz!
27september
Haldiði að mér hafi ekki tekist að rústa tölvunni minni! Downloadaði einhverjum vírus skratta með Grey's Anatomy og allt bara hrundi, þurfti að formatta kvikindið til að fá hana til að virka aftur og missti ALLT. Mikið er ég fegin að þetta gerðist ekki seinna á önninni, núna þarf ég "bara" að endurgera 3 verkefni.
Ég keypti mér nýja myndavél um daginn, er í ljósmynda áfanga og þarf fyrir hann voða fína myndavél. Hún heitir Canon EOS Rebel T1i hér í USA, held hún heiti eitthvað annað í Evrópu, en hún er rosa flott og fín :) Verkefnið fyrir næsta tíma er að taka 140 myndir, 70 af einhverju í "harðri" birtu og 70 "mjúkri" birtu, veit ekki hvort ég sé að þýða þetta rétt á íslensku, en þannig skil ég það allavega.
Ég fór í gær á hafnarboltaleik, Giants töpuðu :( En ég fékk ágætis útskýringu á leiknum og skil allavega núna þessa íþrótt upp að vissu marki :)
Ég og Heiðrún ætlum að skella okkur til L.A. yfir Halloween, Rut vildi ekki koma með. Þannig að núna erum við í óðaönn að reyna að finna okkur búninga, uppástungur vel þegnar!
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, vildi bara skella inn nokkrum línum til að láta vita að ég er á lífi :) Þarf að fara að klára að updatea tölvuna og redda mér CS4 og Office og svona... Og klára svo þessi 3 verkefni sem ég þarf að gera aftur...
Later!
02september
Þá er maður mættur í sæluna aftur, sit úti í garði núna með tölvuna til að komast á netið en við fáum netið í íbúðina okkar á föstudaginn :) Ferðalagið gekk alveg eins og í sögu, ekkert vesen eða neitt - var kannski pínu langt flugið til Seattle en Icelandair er með svo flott sjónvarpskerfi að það reddaði manni alveg :) Við komum að íbúðinni alveg eins og ég skildi hana eftir og varla ryk á hillunum meira að segja! Við erum búnar að chilla bara mest megnis þessa vikuna, snúa við sólarhringnum og svona og svo byrjar skólinn á morgun. Ég er í 5 áföngum þessa önnina, sem þykir soldið mikið þar sem venjulegt er að vera bara í 4.
Ég hef svosem ekki mikið meira að segja... ætla að drífa mig inn með tölvuna og skella mér í bikiní og taka smá sólbað :)
Later!
17júní
Vei vei vei komnar einkunnir:
Sketching for Communication A-
Materials, Tools & Comping Techniques A
Fundamentals of Graphic Design B+
Digital Tools A-
Power of Myth and Symbol B+
Er að panta mér flug aftur út í þessum skrifuðum orðum, fer aftur 28. ágúst og kem aldrei aftur múhahahaha! Nei segi svona, en það er óákveðið hvenær ég kem aftur á klakann, kaupi bara miða aðra leið!
Vona að allir hafi átt ánægjulegan þjóðhátíðardag!
Laterz ;)
05júní
Jæja þá er maður kominn heim í heiðardalinn, mætti á klakann á mánudagsmorguninn síðastliðinn brrrr! Nei nei það er nú ekki svo kalt :) Ég er enn að jafna mig á tímamismuninum, sem útskýrir blogg kl hálf 7 að morgni! Get bara ekki sofið lengur en til 6 virðist vera... Ég náttúrulega klúðraði þessu algjörlega á mánudaginn, var búin að "sofa" alla leiðina í flugvélunum og mætti nokkuð fersk í Keflavík um kl 6 en svo um hádegið þá bara slokknaði á mér og ég svaf til klukkan að verða 19 :S og vakti þá náttúrulega alla nóttina og fór ekki að sofa fyrr en um 8 um morguninn... píndi mig að fara að sofa á miðnætti á þriðjudeginum og þá byrjaði þessi "vakna klukkan 6" árátta mín! Ég skellti mér bara í ræktina á miðvikudagsmorguninn, keypti svona sumarkort í Sporthúsið, helvíti góður díll 9900 kr og gildir til 20. ágúst :D Kannski maður geri það bara að rútínu að fara í ræktina kl 6 á morgnanna, væri ekki slæm hugmynd :)
Æ ég hef svosem ekki mikið að segja - jú ég byrjaði að vinna í gær aftur í Vodafone, ægilega gaman að hitta gamla crewið aftur :D Verður eitthvað Voda-skrall á laugardaginn, vatnsslagur og grill og eitthvað, verður eflaust banastuð ef ég þekki mitt fólk rétt :D Ég er komin aftur með gamla vinnusímanúmerið mitt, ætla nú ekki að posta því hér samt...
En allavega ég vonast bara til að hitta sem flesta í sumar!
Laterz!